Framboð til stjórnar SI
Aðalfundur SI verður haldinn fimmtudaginn 5. mars og kosning sem er rafræn hefst 19. febrúar.
Sigurjón Rúnar Rafnsson, aðstoðarkaupfélagsstjóri Kaupfélags Skagfirðinga

Iðnaðarstarfsemi í hefðbundnum skilningi þess orðs hefur lengi verið burðarás í íslensku atvinnulífi. Á síðustu árum hafa síðan bæst við í vaxandi mæli greinar á borð við hugverkaiðnað, skapandi greinar, tæknifyrirtæki og ferðaþjónusta. Þessi þróun er mikilvæg og sýnir þann fjölbreytileika og þann þrótt sem tekist hefur að byggja upp í íslensku atvinnulífi á síðustu áratugum. Allt er þetta undirstaða lífskjara í landinu og skapar verðmæti sem samfélagið í heild nýtur.
Umgjörðin sem atvinnulífinu er búin af stjórnvöldum og opinberum stofnunum ræður því hvort þessi verðmætasköpun nær að blómstra. Það krefst umhverfis þar sem menntakerfið er í takt við þarfir atvinnulífsins, þar sem hvatar eru til staðar fyrir einstaklinga og fyrirtæki að sækja fram og þar sem íslensk fyrirtæki geta keppt á jafnréttisgrundvelli við önnur þjóðríki. Þar er samkeppnishæfni þjóðarinnar undir, bæði hvað varðar hefðbundinn iðnað og þær nýju greinar sem byggja á hugviti, sköpunarkrafti og þekkingu.
Hugverkaiðnaðurinn gegnir sífellt stærra hlutverki í útflutningi, verðmætasköpun og fjölgun fjölbreyttra starfa. Þar eru fólgin mikil tækifæri fyrir Ísland, ekki síst í samspili við sterka grunninn í orku, matvælaframleiðslu, verkfræði og framleiðsluiðnaði. Það er mikilvægt að Samtök iðnaðarins taki virkan þátt í að móta stefnu sem styður þessa þróun, hvetur til nýsköpunar og tryggir að regluverk og skattaumhverfi styðji við vöxt og alþjóðlega samkeppnishæfni fyrirtækja í öllum greinum.
Fyrir iðnaðinn er brýnt að vinda ofan af þeirri íþyngjandi gullhúðun sem einkennt hefur innleiðingu regluverks á síðustu árum, einfalda regluverk, berjast fyrir skattkerfi sem er þjóðhagslega hagkvæmt og efla enn frekar iðn- og tæknimenntun. Ég hef um langt skeið haft ríkan áhuga á að stuðla að umbótum á starfsskilyrðum í íslensku atvinnulífi og vil leggja mitt af mörkum með því að gefa kost á mér til setu í stjórn Samtaka iðnaðarins.
Í gegnum störf mín undanfarna áratugi hef ég komið að rekstri, stjórnarsetum og stefnumótun fyrirtækja af ýmsum toga og öðlast víðtæka þekkingu á íslenskum atvinnumarkaði og því umhverfi sem honum er búið af stjórnvöldum á hverjum tíma. Undir hatti KS er rekin fjölbreytt iðnaðarstarfsemi; eitt af stærstu rafmagnsfyrirtækjum landsins, stærsta bifreiðaverkstæði utan höfuðborgarsvæðisins, vélsmiðja, trésmíðaverkstæði, vöruflutningar og umfangsmikil matvælaframleiðsla. Þá er undirritaður formaður SAFL, Samtaka fyrirtækja í landbúnaði, sem veitir mér innsýn í samspil iðnaðar, frumframleiðslu og verðmætasköpunar í dreifðum byggðum landsins.
Samtök iðnaðarins eru stærstu aðildarsamtök Samtaka atvinnulífsins með breiðastan hóp aðildarfyrirtækja. Innan SI er fyrir hendi mikil þekking á leikreglum atvinnulífsins og ekki síður á því hvað má betur fara. Ég hef ákveðið að bjóða fram krafta mína til stjórnarsetu í SI næstu tvö árin og tel að þar geti ég lagt mitt af mörkum til að styrkja íslenskt atvinnulíf, efla samkeppnishæfni þess og stuðla að farsælu samspili hefðbundins iðnaðar og nýrra vaxtargreina til framtíðar.