Nú styttist í að sláturtíð hefjist og því gott að rifja upp nokkur atriði sem þarf að hafa í huga áður en fé er afhent til slátrunar.
Meðal annars það sem þarf að huga að áður en bíllinn kemur, sjá hér og reglur um heimtöku sem má nálgast hér.
Ákveðið hefur verið að hætta að senda út afreikninga og vigtarseðla á pappír, nema óskað sé sérstaklega eftir því.
Alla afreikninga og vigtarseðla má nálgast á viðskiptavef KS.
Innleggjendur eru beðnir um að kom upplýsingum tímanlega til sláturhússins ef breytingar hafa orðið t.d. á virðisaukaskattsnúmeri, búsnúmeri eða örðu slíku til að upplýsingar séu réttar í frágangi á bókhaldi.
Verðskrá haustsins má svo nálgast hér.
Til baka