Kaupfélag Skagfirðinga

Ágæti sauðfjárbóndi!

16.01.2019

Nú er birgðatalningum lokið og verið að vinna að ársuppgjöri afurðastöðvanna. Eins og áður hafði verið sagt, þá yrði það skoðað hvort hægt væri að greiða viðbótargreiðslu á innlegg síðasta hausts að ári loknu.

Sláturtíðin gekk í raun ágætlega og sala á afurðum hefur gengið nokkuð vel. Það liggur nú fyrir, að veiking íslensku krónunnar reyndist meiri heldur en við þorðum að byggja áætlun okkar á í haust og hefur það komið okkur til tekna. Því hefur verið tekin ákvörðun hjá Kjötafurðastöð KS og Sláturhúsi KVH um að greiða viðbótargreiðslu á lambakjötsinnlegg s.l. hausts.

6,04% verður greitt á innlegg í september og október og 10% á innlegg ágústmánaðar sem verður reikningsfært 20 janúar.

 

Til baka

Hafa samband