Nú liggur fyrir verðskrá fyrir sauðfjárinnlegg haustsins. Verðskrána má finna hér, eða undir flipanum „afurðaverð til bænda“. Undir þessum lið má sjá hvernig mismunandi sláturálag hefur áhrif á verð í hverri viku. Flokkar innan verðskrár hækka mismikið en að jafnaði um 5,1% miðað við innlegg síðasta árs. Álagsgreiðslur í fyrstu vikum sláturtíðar verður með sama hætti og síðasta ár, en ekki verður greitt álag á dilka undir 13,5 kg.
Með þessari breytingu viljum við hvetja bændur til að bata smærri lömb og mæta vilja markaðarins um dilka yfir þessari þyngd.
Líkt og á síðasta ári verður greitt 8% álag ofan á verðskrá haustsins samhliða útgreiðslu innleggs.
Grunnverðskrá má sjá hér að neðan:
| Verðskrá 2026 | |||||
| E | U | R | O | P | |
| 1 | 936 | 839 | 784 | 610 | 432 |
| 2 | 1068 | 984 | 929 | 733 | 454 |
| 3 | 1125 | 1041 | 947 | 704 | |
| 3+ | 1056 | 956 | 843 | 550 | |
| 4 | 929 | 816 | 660 | ||
| 5 | 806 | 767 | 560 | ||
Greitt verður álag ofan á verðskrána sem nemur 8%, álagið verður laust til greiðslu samhliða innleggi.
Til glöggvunar lítur grunnverðskrá með álagi svona út:
| Verðskrá 2026 með 8% álagi | |||||
| E | U | R | O | P | |
| 1 | 1011 | 907 | 847 | 659 | 467 |
| 2 | 1154 | 1062 | 1003 | 791 | 490 |
| 3 | 1215 | 1124 | 1023 | 761 | |
| 3+ | 1141 | 1032 | 910 | 594 | |
| 4 | 1003 | 881 | 713 | ||
| 5 | 871 | 828 | 605 | ||