Nú liggur fyrir verðskrá fyrir sauðfjárinnlegg haustsins. Verðskrána má finna hér, eða undir flipanum „afurðaverð til bænda“. Undir þessum lið má sjá hvernig mismunandi sláturálag hefur áhrif á verð í hverri viku. Flokkar innan verðskrár hækka mismikið en að jafnaði um 5,1% miðað við innlegg síðasta árs. Álagsgreiðslur í fyrstu vikum sláturtíðar verður með sama hætti og síðasta ár, en ekki verður greitt álag á dilka undir 13,5 kg.

Með þessari breytingu viljum við hvetja bændur til að bata smærri lömb og mæta vilja markaðarins um dilka yfir þessari þyngd.

Líkt og á síðasta ári verður greitt 8% álag ofan á verðskrá haustsins samhliða útgreiðslu innleggs.

Grunnverðskrá má sjá hér að neðan:

  Verðskrá 2026  
 EUROP
1936839784610432
21068984929733454
311251041947704 
3+1056956843550 
4929816660  
5806767560  

Greitt verður álag ofan á verðskrána sem nemur 8%, álagið verður laust til greiðslu samhliða innleggi.

Til glöggvunar lítur grunnverðskrá með álagi svona út:

Verðskrá 2026 með 8% álagi
 EUROP
11011907847659467
2115410621003791490
3121511241023761 
3+11411032910594 
41003881713  
5871828605