Skip to main content

Búið er að setja inn verðskrá fyrir sauðfjárinnlegg haustið 2023.

 

Álag verður greitt eftir sláturtíð fyrir allt sauðfjárinnlegg haustsins ofan á verðskrá sem nemur að lágmarki 5%. Verðskráin getur breyst til hækkunar þegar nær dregur sláturtíð eða eftir því sem línur skýrast miðað við markaðsaðstæður.

 

Álag verður greitt ofan á grunnverð, 13% í viku 37, 10% í viku 38, 5% í viku 39 og 2% í viku 40.

 

Ekki verður greitt fyrir hrúta eða veturgamla hrúta en hægt er að láta slátra þeim án gjalds. Ef þeir eru teknir heim þá gildir hefðbundið heimtökugjald fyrir fullorðið.

Öll gjaldaskrá er óbreytt frá fyrra ári og fyrirkomulag um heimtöku.

 

Allar nánari upplýsingar um verð og greiðslufyrirkomulag má finna undir Afurðaverð til bænda.

 

Jafnframt minnum við bændur á að kynna sér upplýsingar um heimtökureglur, hrútadaga, nýja innleggjendur o.fl. hér inná heimasíðunni.

 

Fyrsti sláturdagur er 11. september og hvetjum við alla að panta sem fyrst fyrir slátrun hjá Óla Viðari í síma 455 4593 eða hjá oli.andresson@ks.is