Jafnlaunastefna Kaupfélags Skagfirðinga svf.
Kaupfélag Skagfirðinga leggur metnað sinn í að tryggja öllum starfsmönnum jöfn laun og sömu kjör fyrir sömu og/eða jafnverðmæt störf, þannig að launamunur sé ekki til staðar. Umfang jafnlaunastefnunnar tekur til allra starfsmanna.
Markmið Kaupfélags Skagfirðinga er að vera eftirsóttur vinnustaður þar sem konur og karlar hafa jöfn tækifæri í starfi.
Kaupfélag Skagfirðinga hefur í þessu samhengi innleitt verklag og skilgreint viðmið við ákvörðun launa. Laun taka mið af inntaki starfa, álagi, hæfni og árangri starfsmanna. Forsendur launaákvarðana eru að þær séu í samræmi við kjarasamninga, studdar rökum og tryggi að sömu laun séu greidd fyrir sambærileg eða jafnverðmæt störf. Kaupfélag Skagfirðinga skuldbindur sig til að framfylgja jafnlaunastefnunni í hvívetna.
Samkomulag hefur verið gert við vottunaraðila um að gera árlega úttekt á jafnlaunastefnu og jafnlaunakerfi Kaupfélags Skagfirðinga. Geri vottunaraðili á einhverjum tímapunkti athugasemdir t.d. varðandi launasamsetningu einhverra starfa mun samsetning vera endurskoðuð í kjölfar ábendinga og lagfærð.
Kaupfélag Skagfirðinga hefur skjalfest, innleitt, og heitir því að viðhalda og bæta stöðugt stjórnun jafnlaunakerfis í samræmi við kröfur ÍST85:2012 staðalsins.
Á grunni nýs lagaramma mun Kaupfélag Skagfirðinga:
- Innleiða vottað jafnlaunakerfi sem byggist á jafnlaunastaðlinum ÍST 85, það verði skjalfest og því viðhaldið.
- Framkvæma launagreiningu a.m.k. einu sinni á ári þar sem borin eru saman jafnverðmæt störf og það skoðað hvort mælist munur á launum eftir kyni og kynna helstu niðurstöður fyrir starfsmönnum.
- Bregðast við óútskýrðum launamun með stöðugum umbótum og eftirliti.
- Gera innri úttekt og halda rýni stjórnenda árlega.
- Fylgja viðeigandi lögum, reglum og kjarasamningum sem í gildi eru á hverjum tíma skv. lögum 150/2020 og reglugerð 1030/2017.
- Kynna stefnuna árlega fyrir starfsmönnum Kaupfélags Skagfirðinga.
- Birta stefnuna á heimasíðu Kaupfélags Skagfirðinga.